Ársfundur Veðurstofu Íslands 2021
Ársfundur Veðurstofu íslands 2021
Taka tvö!
Vegna samkomutakmarkana var ársfundi frestað en komin er ný dagsetning:
Miðvikudagurinn, 5. maí
Klukkan 09:00 - 10:30
Ef þú átt í vandræðum með að horfa á streymið, vinsamlegast ýttu hér til að horfa
Ársfundur Veðurstofu Íslands 2021
Brú milli vísinda og samfélags
-Leiðin til aðlögunar vegna loftslagsbreytinga
Loftslagsbreytingar eru náttúrúvá og mesta áskorun sem samfélagið stendur frammi fyrir. Á sama hátt og við bregðumst við þegar náttúruvá á borð við jarðhræringarnar á Reykjanesskaga dynur yfir, þarf samfélagið að beita réttum aðgerðum við að takast á við loftslagsbreytingar. Þær aðgerðir þurfa að byggja á vísindalegum grunni sem myndar “brú milli vísinda og samfélags” og eykur getu okkar til að takst á við áskoranir af völdum loftslagsbreytinga.
Á ársfundinum verða kynnt fyrstu skrefin til að styrkja þessa brú milli vísinda og samfélags í gegnum nýjan samstarfsvettvang fjölmargra stofnanna og hagaðila undir forystu Veðurstofu Íslands.
Ársfundinum verður streymt og hefst kl. 9 og lýkur kl. 10.30.