Landsþing Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Landsþing hefur æðsta vald í málefnum Sambandsins. Það kemur saman árlega, að jafnaði í mars eða apríl. Á því ári sem almennar sveitarstjórnarkosningar eru haldnar skal landsþing þó haldið eigi síðar en í lok september. Stjórn Sambandsins boðar til landsþings og ákveður þingstað og tímasetningu.
Að afloknum almennum sveitarstjórnarkosningum kjósa hlutaðeigandi sveitarstjórnir fulltrúa á landsþing og gildir sú kosning fyrir kjörtímabil sveitarstjórnar. Um fjölda aðalfulltrúa á landsþingi gildir eftirfarandi:
1. Sveitarfélag með allt að 1.000 íbúa kýs 1 fulltrúa.
2. Sveitarfélag með 1.001 til 3.000 íbúa kýs 2 fulltrúa.
3. Sveitarfélag með 3.001 til 5.000 íbúa kýs 3 fulltrúa.
4. Sveitarfélag með 5.001 til 10.000 íbúa kýs 4 fulltrúa
5. Sveitarfélag með fleiri en 10.000 íbúa kýs einn fulltrúa fyrir hvert
byrjað tugþúsund íbúa umfram 10.000 til viðbótar hinum fjórum.
Íbúafjöldi samkvæmt þessari grein skal miðaður við 1. janúar á því ári sem almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram. Notaðar skulu mannfjöldatölur skv. skráningu Hagstofu Íslands. Verði breyting á sveitarfélagaskipan frá 1. janúar fram til sveitarstjórnarkosninga, skal laga íbúafjöldann að þeirri breytingu.
Varafulltrúar á landsþingi skulu kosnir jafnmargir og aðalfulltrúar. Kosning fulltrúa fer eftir sömu reglum og gilda um kosningu nefnda skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga, annarra en byggðarráðs.
Kjörgengir sem fulltrúar á landsþingi eru nýkjörnir aðalmenn í sveitarstjórnum og varamenn þeirra jafnmargir að tölu, í samræmi við yfirlýsingu yfirkjörstjórnar sveitarfélags um kosningaúrslit sbr. 119. gr. a. kosningalaga nr. 112/2021.
Að kosningu lokinni, í síðasta lagi 15. júlí, sendir sveitarfélagið skrifstofu Sambandsins upplýsingar um nöfn þeirra sem hafa verið kjörnir fulltrúar á landsþing og varafulltrúar.
Samþykktir Sambands íslenskra sveitarfélaga: https://www.samband.is/um-sambandid
Upplýsingar vegna bókunar á gistingu
Bókun á herbergjum
Við hvetjum ykkur til að nýta ykkur bókunarsíðuna á netinu þar sem hægt er að frátaka herbergi að ykkar eigin vali:
Óskað er eftir að senda nafnalista og séróskir um herbergi til info@icelandradstefnur.is. Afgreiðsla á gistibókunum er „fyrstur kemur, fyrstur fær“.
Ef tveir aðilar deila herbergi skal haka við í viðeigandi dálki í forminu og bæta við seinna nafninu.
Greiðslufyrirkomulag
Eftir að bókun hefur verið frátekin mun sá sem merktur hefur verið sem tengiliður sveitarfélags fá reikninginn fyrir allar bókaðar gistingar upp að þeim tímapunkti fyrir sitt sveitarfélag.
Gistipöntun hefur ekki verið afgreidd fyrr en sendandi hefur fengið tölvupóst þess efnis ásamt reikningi. Greiðslufrestur er 10 virkir dagar frá útgáfudegi reiknings. Ef greiðsla berst ekki innan settra tímamarka verða herbergin sett aftur í almenna sölu á bókunarsíðu Iceland ráðstefnur.
Þegar reikningur er greiddur þá biðjum við vinsamlegast um að staðfesting á greiðslu sé send til Iceland ráðstefnur á info@icelandradstefnur.is – skýring: Landsþing, nafn sveitarfélags. Umsýslugjald fyrir hvern reikning er 9.900 kr.
Þar sem í einhverjum tilfellum er ekki vitað að svo stöddu hverjir fulltrúar sveitarfélaganna verða að þá viljum við benda sveitarfélögum á að bóka þau herbergi sem þau telja sig þurfa og setja nafn sveitarfélags í for- og eftirnafns reitina. Síðar er hægt að nafnabreyta herbergjum þegar komið er á hreint hvaða einstaklingar munu nota herbergin.
Vinsamlega athugið að með því að senda inn herbergjabókun til Iceland ráðstefnur vegna gistingar þá samþykkir sveitarfélagið eftirfarandi afbókunarskilmála:
Afbókanir sem gerðar eru meira en 84 dögum fyrir komudag eru endurgreidd að fullu.
Afbókanir sem gerðar eru minna en 84 dögum en meira en 28 dögum fyrir komudag fela í sér 50% afbókunargjald af heildarbókun.
Afbókanir sem gerðar eru minna en 28 dögum en meira en 15 dögum fyrir komudag fela í sér 80% afbókunargjald af heildarbókun.
Afbókanir sem gerðar eru minna en 15 dögum fyrir komudag eru ekki endurgreiddar.
Vegna þessa hvetjum við alla til að ganga frá sinni gistingu sem fyrst. Allar afbókanir eða breytingar á gistinóttum skulu berast með tölvupósti til info@icelandradstefnur.is